Legal notice

Notendaskilmálar Austurgrams

Almennir skilmálar

Vinsamlegast kynntu þér eftirfarandi skilmála vel. Með því að stofna aðgang, skrá þig inn eða halda áfram að skoða Austurgrams, annaðhvort í vafra eða appi, staðfestir þú þessa notendaskilmála. Í eftirfarandi verður þú nefndur notandi. Austurgrams áskilur sér rétt til að breyta þessum skilmálum og taka þær breytingar gildi samstundis.

Austurgrams áskilur sér rétt til að taka út eða breyta efni sem brýtur gegn þessum skilmálum og loka á aðgang viðkomandi aðila.

Aðgangur að vefnum og appinu er aðeins fyrir einstaklinga sem eru 18 ára og eldri. Austurgrams ber enga ábyrgð ef aðilar sem ekki eru lögráða, sjálfráða eða fjárráða nota vefinn.

Notandi ber fulla ábyrgð á því efni sem hann setur á vefinn og skráð er undir notandanafni hans. Austurgrams fer ekki sérstaklega yfir aðgang eða upplýsingar notenda og ber enga ábyrgð á þeim. Sér í lagi ábyrgist Austurgrams ekki á neinn hátt þá hluti eða vörur sem notandi býður til sölu, gæði þeirra né ástand.

Austurgrams ber enga ábyrgð á tjóni af neinu tagi sem notandi getur orðið fyrir vegna samskipta eða viðskipta við annan notanda á vefnum eða utan hans.

Notandi samþykkir að setja ekki inn efni sem brýtur í bága við lög, þar með talið:

  • að setja inn höfundaréttarvarið efni án leyfis rétthafa
  • að setja inn ærumeiðandi efni eða brjóta gegn friðhelgi einkalífs annarra
  • að hafa í frammi hótanir við fólk sem til þess eru fallnar að vekja ótta um líf, heilbrigði eða velferð þess eða annarra
  • að ráðast opinberlega á fólk vegna þjóðernis, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða eða kynhneigðar.

(sjá til dæmis 228.–240. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.)

Notandi samþykkir einnig að bjóða ekki til sölu hluti sem óheimilt er að selja samkvæmt lögum, svo sem ólöglega eða stolna muni, lyfseðilsskyld lyf, vopn eða annað sem bannað er.

Í appi og á vefsvæði Austurgrams má finna tengla á aðrar vefsíður. Austurgrams ber enga ábyrgð á efni þeirra eða tjóni sem getur orðið við notkun þeirra.

Austurgrams fer að lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sem og reglugerð ESB 2016/679 (GDPR), og eyðir persónuupplýsingum notenda þegar þeirra er ekki lengur þörf.

Óleyfilegt er að falsa persónuupplýsingar þegar notandi skráir sig á Austurgrams.

Austurgrams kann að nota greiningarþjónustur (svo sem Google Analytics) sem nýta vafrakökur ("cookies") til að safna ópersónugreinanlegum upplýsingum um notkun. Slíkar upplýsingar kunna að vera vistaðar utan Evrópska efnahagssvæðisins.

Allan ágreining sem upp kann að koma vegna notkunar í appi eða á vef Austurgrams skal reyna að leysa með sáttum og gilda þá íslensk lög. Náist ekki sættir skal málið fara fyrir Héraðsdómi Austurlands.

Um þjónustuna

Austurgrams er markaðstorg sem tengir saman notendur á Austurlandi sem vilja selja notaða eða handgerða hluti og þá sem vilja kaupa. Notkun þjónustunnar krefst þess að notandinn stofni aðgang og sú aðgerð er ókeypis.

1. Umfang þjónustunnar

Eftir að hafa stofnað ókeypis aðgang geta notendur búið til prófíl, sett inn vörur til sölu og leitað að hlutum til að kaupa á markaðstorgi Austurgrams.

Allar nýjar söluskráningar fara í gegnum samþykktarferli áður en þær birtast á markaðstorginu. Austurgrams áskilur sér rétt til að hafna eða fjarlægja skráningar án frekari útskýringar.

Austurgrams ber enga ábyrgð á því að notandi sem haft er samband við svari innan ákveðins tíma eða yfir höfuð.

2. Söluþóknun og greiðslur

Austurgrams tekur söluþóknun af seldum vörum sem hér segir:

  • 5% af notuðum vörum
  • 15% af handgerðum vörum

Greiðslur milli kaupanda og seljanda fara fram í gegnum greiðslukerfi sem Austurgrams nýtir. Austurgrams er einungis milliliður um greiðsluna og ber ekki ábyrgð á endurgreiðslum vegna viðskipta milli notenda. Endurgreiðslur, ef einhverjar, eru á ábyrgð seljanda í samræmi við lög og samkomulag aðila.

3. Uppsögn úr þjónustunni

Notandi getur sagt upp aðganginum sínum hvenær sem er.

Austurgrams áskilur sér rétt til að segja upp aðgangi notenda. Austurgrams áskilur sér einnig rétt til að fjarlægja eða breyta upplýsingum sem notendur setja inn undir notandanafni sínu án frekari útskýringar.

4. Ábyrgð Austurgrams

Austurgrams er hlutlaus milliliður, er ekki hluti af samningi sem notendur gera sín á milli og tekur ekki þátt í viðskiptum þeirra. Austurgrams ber enga ábyrgð á tjóni eða ágreiningi sem kann að verða við samninga, viðskipti eða samskipti milli notenda.

Austurgrams ábyrgist á engan hátt gæði né ástand hluta á markaðstorginu.

5. Skyldur notanda

Notandi skuldbindur sig til að gefa réttar upplýsingar undir sínu notandanafni og lýsa vörum sínum rétt. Ef Austurgrams telur sig hafa grun um að upplýsingar sem notandi hefur gefið séu rangar eða brjóti í bága við lög áskilur Austurgrams sér rétt til að fjarlægja upplýsingarnar og/eða eyða aðgangi notandans.